Fara í efni

20,2 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Til baka

20,2 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Niðurstöður skýrslu sem Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK sýna að 20,2 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2024, reiknað á föstu verðlagi ársins 2024, en rekstrarkostnaður VIRK nam 4,6 milljörðum það sama ár.

Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan þjónustuþega frá VIRK og nam hann 14,3 milljónum króna á árinu 2024, einnig reiknað á föstu verðlagi.

Í skýrslu Talnakönnunar er fundinn mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni, sem verður til umfjöllunar á ársfundi VIRK 29. apríl, að ávinningurinn af starfsendurhæfingarþjónustu VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.

Sjá nánar:
Skýrslur Talnakönnunar
Árangur VIRK
Þjónustukönnun VIRK


Fréttir

22.04.2025
08.04.2025

Hafa samband