Samstarf við heilbrigðisstarfsmenn
VIRK kaupir þjónustu af fagaðilum með heilbrigðismenntun um allt land.
Ráðgjafar og sérfræðingar sjóðsins taka ákvörðun um kaup á þessari þjónustu í samræmi við þarfir einstaklinga og áherslur í starfsendurhæfingu.
Til staðar er n.k. rammasamningur sem heilbrigðisstarfsmenn (aðrir en sálfræðingar og sjúkraþjálfarar) um allt land geta skráð sig á og senda þá til VIRK verðtilboð í þá þjónustu sem skilgreind er í samningnum.
Skila má umsóknum ásamt fylgigögnum á Mínar síður - þjónustuaðilar. Sjá nánar hér: Hvernig gerist ég þjónustuaðili?
Sérfræðingar VIRK halda utan um allar samþykktar umsóknir heilbrigðistarfsmanna og koma upplýsingum um samþykktir áleiðis til ráðgjafa.
Samningur við heilbrigðisstarfsmenn
Umsókn um aðild að samningi- fyrir heilbrigðisstarfsmenn