Aftur í vinnu
Í þeim hröðu breytingum sem nú eru í samfélaginu okkar getur þú búist við að standa frammi fyrir því nokkru sinnum á starfsferlinum að hasla þér völl á nýjum starfsvettvangi. Við slík tímamót getur verið gott að skoða vel hvað hefur breyst og hvert þig langar að stefna næst. Hér á Aftur í vinnu getur þú nálgast efni sem spannar allt ferli atvinnuleitar frá því þú byrjar að hugsa um að breyta til yfir í fyrstu vikurnar í nýju starfi.