Matthías M. Guðmundsson
Samvinna mannauðsstjóra Mosfellsbæjar, VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og sjúkraþjálfara varð til þess að Matthías M. Guðmundsson gat hætt í veikindaleyfi og hafið aftur störf mörgum mánuðum fyrr en hann átti von á.
Það var í janúar síðastliðnum sem Matthías, sem er 65 ára, varð að hætta störfum í íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar vegna mikilla verkja í baki. ,,Ég hef verið bakveikur í mörg ár og annað slagið fengið sprautur og verið í sjúkraþjálfun. Það hefur alltaf dugað í einhvern tíma. Ég gat haldið 100 prósenta vinnu þar til í janúar á þessu ári en þá var ég kominn með það mikla verki að ég var gjörsamlega óvinnufær vegna kvala,“ greinir Matthías frá.
Gefandi fundur
Hann kveðst hafa sótt strax um meðferð hjá lækni á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og á Reykjalundi. ,,Það er hins vegar afar löng bið eftir meðferð á þessum stöðum, það getur verið hálfs árs bið eða jafnvel bið í heilt ár. Ég gerði eiginlega ekkert í nokkrar vikur eftir að ég fór í veikindaleyfið en fór þó út að ganga á hverjum degi. Þegar ég hafði verið frá vinnu í um það bil átta vikur hringdi mannauðsstjóri Mosfellsbæjar, Sigríður Indriðadóttir, í mig og boðaði mig á sinn fund.“
Fundurinn með mannauðsstjóranum var mjög gefandi, að sögn Matthíasar. ,,Það var alveg magnað að Sigríður skyldi hafa samband við mig af fyrra bragði og hvetja mig áfram. Hún hafði skilning á veikindum mínum, alveg eins og yfirmenn mínir í íþróttamiðstöðinni, og það var einstaklega gott að ræða við hana. En ég kom alveg af fjöllum þegar hún greindi mér frá þeirri aðstoð sem hægt er að fá hjá Starfsendurhæfingarsjóði. Í framhaldi af þessum fundi okkar hafði ég samband við Karenu Björnsdóttur, ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá BSRB. Karen tók mér jafn vel og Sigríður og hvatti hún mig til þess að gera eitthvað strax í málunum í stað þess að bíða bara eftir plássi þar sem ég hafði sótt um.“
Hann leggur jafnframt áherslu á að mikilvægt sé að vera í reglulegum samskiptum við vinnustað sinn og vinnufélaga meðan á veikindaleyfi stendur. ,,Að fara í heimsókn að minnsta kosti einu sinni í viku er mikilvægt að mínu mati.“
Sjúkraþjálfun og sjálfstyrking
Matthías fór í aprílbyrjun í sjúkraþjálfun í Mosfellsbæ og greiddi Starfsendurhæfingarsjóður fyrir meðferðina. ,,Ég var tekinn í nokkurs konar prógramm fimm daga vikunnar. Ég var í meðferð hjá sjúkraþjálfaranum tvo daga í viku en hina þrjá dagana gerði ég sjálfur æfingar í stöðinni sem sjúkraþjálfarinn hafði kennt mér. Ég hélt einnig áfram að ganga á hverjum degi. Þetta gekk ljómandi vel og ég var í þessu í allt sumar.“
Þegar líða tók á sumarið gerði Matthías áætlun með sjúkraþjálfarunum um að ef batinn yrði nægur færi hann í 50 prósenta vinnu ekki síðar en í september. ,,Það tókst og þetta hefur gengið sæmilega. Ég er ekki alveg laus við verkina en mér líður miklu betur en oft áður,“ segir Matthías.
Hann getur þess að sjálfstyrkingarnámskeið sem hann fór á hafi einnig gert honum gott. ,,Ég sá í byrjun sumars viðtal í tímariti ASÍ við mann sem hafði verið frá vinnu vegna bakveiki eins og ég. Honum hafði verið boðið að fara á námskeið í sjálfstyrkingu. Mér fannst þetta svo jákvætt og þetta hitti mig alveg í hjartastað. Ég spurði Karenu ráðgjafa hvort ég gæti nýtt mér slíkt og hún tók mjög vel í það. Þetta var 20 tíma námskeið sem var mér að kostnaðarlausu eins og sjúkraþjálfunin. Það kom sér vel að geta farið á þetta námskeið sem gerði mér virkilega gott.“
Stórkostlegt framtak
Matthías segist vera afar þakklátur fyrir alla aðstoðina sem hann hefur fengið. ,,Þetta kom mér virkilega á óvart því að ég hafði ekki hugmynd um þetta. Stofnun Starfsendurhæfingarsjóðs er stórkostlegt framtak. Það eru ekki nærri allir sem vita af þessu en það á væntanlega eftir að breytast þegar þetta spyrst út. Ég hef sjálfur látið alla mína vinnufélaga vita af því sem í boði er. Það er sérstaklega gott að vita af þessu núna í kreppunni því að menn veigra sér kannski við að fara í langa meðferð án slíkrar aðstoðar.“
Samtímis því sem Matthías var í sjúkraþjálfun fór hann reglulega í viðtöl til Karenar ráðgjafa. ,,Þetta hafa verið mjög ánægjuleg samskipti og hún fylgist enn með mér,“ tekur hann fram.
Hann leggur jafnframt áherslu á að mikilvægt sé að vera í reglulegum samskiptum við vinnustað sinn og vinnufélaga meðan á veikindaleyfi stendur. ,,Að fara í heimsókn að minnsta kosti einu sinni í viku er mikilvægt að mínu mati.“