VIRK leitar að öflugum sérfræðingi á sviði starfsendurhæfingar
Til baka
03.06.2011
VIRK leitar að öflugum sérfræðingi á sviði starfsendurhæfingar
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður leitar að sérfræðingi til að starfa að fjölbreyttum verkefnum á sviði
starfsendurhæfingar. Hér gefst einstakt tækifæri til að vinna að uppbyggingu, þróun og þjónustu á sviði
starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Um er að ræða mjög krefjandi starf.
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda sem nýtist í starfi (t.d. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, náms- og starfsráðgjafar, sálfræði, eða sjúkraþjálfunar )
- Víðtæk reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er æskileg
- Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni
- Leiðtogahæfileikar og jákvætt viðmót
- Sveigjanleiki, færni og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
Hagvangur sér um ráðningarferlið og eftirfarandi starfsmenn Hagvangs veita nánari uppýsingar:
Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2011 og bera að sækja um á heimasíðu hagvangs (http://www.hagvangur.is/) - sjá einnig nánari upplýsingar hér: http://hagvangur.is/radningar/storf-i-bodi/nr/1290/