Fara í efni

VIRK framúrskarandi fyrirtæki

Til baka

VIRK framúrskarandi fyrirtæki

Creditinfo staðfesti í vikunni að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2016. Eingöngu komu til greina þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum 2016.

VIRK er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þessar kröfur en af tæplega 35.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 624 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika. 

Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo:

  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
  • Er í lánshæfisflokki 1-3
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
  • Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
  • Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
  • Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
  • Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo

Sjá viðurkenningarskjalið hér.


Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband