Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati
Til baka
11.11.2011
Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati
Sérfræðingar sem koma að sérhæfðu mati hjá VIRK eru nú nálægt þrjátíu talsins og eru matsteymi í Reykjavík, á Akureyri og á austurlandi. Vinnudagur sérfræðinga í sérhæfðu mati var haldinn laugardaginn 29. október sl. í Háskólanum í Reykjavík.
Á vinnudeginum var upplýsingakerfi VIRK kynnt og aðgengi sérfræðinganna að því undirbúinn, farið var yfir aðkomu ólíkra faghópa og nánari stöðlun skýrsluforms í sérhæfðu mati. Einnig var farið yfir notkun ICF í matinu og samræmingu í notkun skýrivísa, farið yfir atvinnutengd úrræði og tengingu við matið og að lokum var kynnt aðkoma félagsráðgjafa að sérhæfðu mati en sú fagstétt hefur nýlega bæst í hóp þeirra sem að matinu koma. Á vinnudeginum sköpuðust mikilvægar umræður sem skipta miklu máli fyrir þróun matsins og samræmingu matsaðila. Vinnudagurinn þótti heppnast vel í alla staði.