Fara í efni

Viltu koma þekkingu þinni á framfæri?

Til baka

Viltu koma þekkingu þinni á framfæri?

Ársfundur Starfsendurhæfingarsjóðs verður haldinn í byrjun apríl 2011. Af því tilefni  gefur sjóðurinn út ársrit sem mun innihalda ársskýrslu og annan fróðleik um starfsemi Starfsendurhæfingarsjóðs. Einnig  er áætlað að hafa fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í  ritinu. VIRK býður því áhugasömum aðilum  sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og vilja fjalla um starfsendurhæfingu á  fræðilegum nótum að senda inn greinar til birtingar. Sérstaklega er óskað eftir greinum um starfsendurhæfingu með áherslu á vinnutengingu og/eða gagnverkandi áhrif vinnu og heilsu.                       

Skiladagur greina verður 1. febrúar og útgáfa á ársfundi Starfsendurhæfingarsjóðs fyrri hluta aprílmánaðar 2011. Ársrit 2010 var prentað í 2000 eintökum og var því dreift til einstaklinga, fagaðila, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land. 

Vinsamlega sendið fyrirspurnir eða  hugmyndir að efni og efnistökum til ritstjóra á ingalo@virk.is í síðasta lagi 30. nóvember. 


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband