Viltu koma þekkingu þinni á framfæri?
Viltu koma þekkingu þinni á framfæri?
Ársfundur Starfsendurhæfingarsjóðs verður haldinn í apríl 2010. Af því tilefni gefur sjóðurinn út ársrit sem
mun innihalda ársskýrslu og annan fróðleik um Starfsendurhæfingarsjóð. Einnig er áætlað að hafa fræðilega umfjöllun
um starfsendurhæfingu í ritinu.
VIRK óskar því eftir fræðigreinum sem tengjast starfsendurhæfingu, frá aðilum sem hafa áhuga á málaflokknum og vilja fjalla
um starfsendurhæfingu á fræðilegum nótum. Vinsamlega sendið inn hugmyndir að efni til Ingibjargar Þórhallsdóttur
sérfræðings hjá VIRK á ingalo@virk.is í síðasta lagi 31. janúar. Skiladagur greina
verður síðan 12. mars og útgáfa á ársfundi Starfsendurhæfingarsjóðs. Almennt er gert ráð fyrir að lengd greina fari
ekki yfir 2500 orð ( u.þ.b. 15000 stafi og bil)