Vilt þú skrifa fræðigrein í Ársrit VIRK 2012?
Til baka
06.10.2011
Vilt þú skrifa fræðigrein í Ársrit VIRK 2012?
Ársfundur VIRK verður haldinn í apríl 2012. Af því tilefni gefur sjóðurinn út ársrit sem inniheldur ársskýrslu og
annan fróðleik um starfsemi VIRK. Einnig er stefnt að því að hafa fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ritinu.
Áhersluþættir í þessu riti verða á samstarfsaðila VIRK og tengingu starfsendurhæfingar við atvinnulífið.
VIRK býður þeim sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og vilja fjalla um aðferðir, áhrif og árangur í starfsendurhæfingu með fræðilegri nálgun, að senda greinar til birtingar. Sérstaklega er óskað eftir greinum um starfsendurhæfingu með áherslu á aðferðir og árangur á vinnumarkaði auk áhrifa umhverfis á árangur í starfsendurhæfingu. Allar hugmyndir að umfjöllunarefni verða teknar til athugunar.
Skiladagur greina er 15. desember 2011. Útgáfa ársrits verður á ársfundi VIRK í apríl 2012. Ársritið 2011 var prentað í 2500 eintökum og var því dreift til einstaklinga, fagfólks, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land, auk þess sem ritið er aðgengilegt á heimasíðu sjóðsins http://virk.is/static/files/virk_arsrit_2011_2.pdf .
Vinsamlega sendið fyrirspurnir eða hugmyndir að efni og efnistökum til ritstjóra á ingalo@virk.is í síðasta lagi 15. nóvember.