Um 300 manns á ársfundi og ráðstefnu VIRK
Til baka
18.04.2013
Um 300 manns á ársfundi og ráðstefnu VIRK
Um 300 manns mættu á ársfund og ráðstefnu VIRK þann 11. apríl sl. Ársfundurinn var fyrir hádegið og fjölmenn og vel
heppnuð ráðstefna undir yfirskriftinni "Mat á getu til starfa - hvað skiptir máli?" var haldin eftir hádegið. Aðalfyrirlesari
ráðstefnunnar var Sir Mansel Aylward frá Bretlandi og var fyrirlestur hans sérstaklega áhugaverður og vakti mikla athygli fundargesta. Aðrir fyrirlesrar
á ráðstefnunni voru Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, Guðmundur Björnsson endurhæfingar- og trúnaðarlæknir,
Haraldur Jóhannsson yfirlæknir hjá TR og Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri Starfsendurhæfingarsviðs VIRK. Allar
glærur fyrirlesara er að finna hér á heimsíðunni undir Kynningarefni - sjá einnig hér. Á sama stað
er hægt að nálgast Ársrit VIRK á rafrænu formi.
Myndir frá ársfundi og ráðstefnunni er að finna hér
Myndir frá ársfundi og ráðstefnunni er að finna hér