Tveir nýir ráðgjafar hófu störf í byrjun apríl
Til baka
23.04.2013
Tveir nýir ráðgjafar hófu störf í byrjun apríl
Hildur Gestsdóttir hóf störf hjá stéttarfélögunum á Suðurlandi og er með aðsetur á Selfossi. Hún lauk námi
í félagsráðgjöf frá Den Sociale Höjskole í Kaupmannahöfn árið 2007. Eftir útskrift vann hún í eitt ár sem
félagsráðgjafi í vinnumiðstöð (jobcenter) í Danmörku. Árið 2008 flutti hún til Íslands og vann í eitt ár sem
félagsráðgjafi í Vesturgarði, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar. Frá 2009 - 2012 starfaði hún sem
félagsráðgjafi hjá sveitarfélaginu Árborg.
Brynhildur Barðadóttir er nýr ráðgjafi hjá stéttarfélaginu Hlíf í Hafnarfirði, en hún er fyrsti ráðgjafinn
sem er ráðinn beint til starfa hjá Hlíf og er hún með aðsetur þar. Hingað til hafa ráðgjafar Eflingar í Reykjavík sinnt
félagsmönnum Hlífar. Brynhildur útskrifaðist með BA gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands
árið 1993 og MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu árið 2007. Hún er einnig menntaður lyfjatæknir.
Brynhildur hefur víðtæka starfsreynslu á sviði velferðarþjónustu hjá sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem hún gegndi starfi félagsmálastjóra á Ísafirði um tveggja ára skeið. Hún
starfaði í fimm ár hjá Rauða krossi Íslands við þróun úrræða og stofnun á t.d. Konukoti, fyrir heimilislausar konur,
Hjálparsíma 1717 og sem forstöðumaður Rauðakrosshússins. Hjá Hafnarfjarðarðarbæ starfaði hún um tíma sem
sérfræðingur á sviði uppbyggingar úrræða fyrir atvinnuleitendur.