Fara í efni

Tveir nýir ráðgjafar

Til baka

Tveir nýir ráðgjafar

Tveir nýir ráðgjafar hafa tekið til starfa hjá stéttarfélögum í samstarfi við VIRK. Kristbjörg Leifsdóttir hóf störf  hjá BHM, KÍ og SSF í mars og Arna Björk Árnadóttir hóf störf hjá Eflingu, Hlíf og Sjómannafélagi Íslands í dag. Kristbjörg er með aðsetur hjá BHM og Arna Björk hjá Eflingu.

Kristbjörg er félagsráðgjafi, útskrifuð frá Háskóla Íslands 1997. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu og hefur m.a. starfað við  félagslega ráðgjöf, barnavernd og fjárhagsaðstoð. Undanfarin 14 ár starfaði  hún hjá Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar. 

Arna Björk Árnadóttir  lauk diplomanámi á meistarstigi í Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands  2010 og B.A. prófi frá Háskóla Íslands í Tómstunda- og félagsmálafræði 2009 .  Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu, starfaði m.a. sem deildarstjóri félagsstarfs hjá þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts og nú síðast hjá Vinnumálastofnun við náms- og starfsráðgjöf.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband