Fara í efni

Tilkynning um styrkveitingar

Til baka

Tilkynning um styrkveitingar

Styrkveitingar til rannsókna og þróunar á uppbyggingu úrræða í starfsendurhæfingu.

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður (VIRK) veitir tvisvar á ári styrki til rannsókna og þróunar á uppbyggingu úrræða í starfsendurhæfingu. Úthlutun styrkja frá VIRK á sér grundvöll bæði í stofnskrá VIRK og lögum nr. 60/2012 um starfsendurhæfingarsjóði. Heildarfjárveiting til úthlutunar styrkjanna er skilgreind í árlegri fjárhagsáætlun sjóðsins og samþykkt af stjórn hans.

Við mat á umsóknum er áhersla lögð á að viðkomandi rannsókn eða verkefni stuðli að vel skilgreindri uppbyggingu og ávinningi í starfsendurhæfingu og/eða séu til þess fallin að auka almennt þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi. Frekari upplýsingar um umsóknarferli vegna styrkveitinga er að finna hér.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband