Seinni lotu námskeiðs fyrir ráðgjafa lokið
Til baka
06.03.2009
Seinni lotu námskeiðs fyrir ráðgjafa lokið
Nú eru ráðgjafarnir okkar búnir að ljúka seinni lotu grunnnámskeiðs. Í þessari lotu sem stóð í tvo daga var
fjallað um ýmsa mikilvæga þætti. Umræður voru um notkun upplýsingatækni í starfi ráðgjafa, um velferðarkerfið og
réttindi og skyldur launþega á vinnumarkaði, orsakir fyrir skertri starfsorku, mats- og flokkunarkerfi í starfsendurhæfingu, persónuvernd og
siðareglur, heilsueflingu í starfsendurhæfingu og úrræðií starfsendurhæfingu.
Gert er ráð fyrir að allir ráðgjafar sem starfa á vegum Starfsendurhæfingarsjóðs hjá hinum ýmsu sjúkrasjóðum í landinu taki reglulega þátt í simenntun sem sjóðurinn skipuleggur og að allir ljúki þátttöku í grunnnámskeiðum fljótlega eftir að þeir hefja störf.