Samstarf við Rauland í Noregi
Til baka
15.12.2011
Samstarf við Rauland í Noregi
Rauland, sem er endurhæfingarstofnun í Noregi hefur sýnt sérhæfða mati VIRK mikinn áhuga undanfarna mánuði. Stofnunin hefur áhuga á að nota og prófa sérhæfða matið í sínu starfi og er að hefja undirbúning að því. VIRK og Rauland hafa ákveðið að hefja samstarf og vinna nánari rannsóknir á matinu. Starfsmenn Rauland komu til landsins nú í lok nóvember og funduðu með starfsmönnum VIRK og sérfræðingum í sérhæfðu mati.
Farið var yfir þætti sem nauðsynlegt er fyrir þá að undirbúa áður en þeir hefjast handa við framkvæmd matsins, s.s. að þýða handbók sérfræðinga í matinu, fá þjálfun í notkun þess o.s.frv. Einnig voru lögð upp drög að rannsóknaráætlun og rætt um næstu skref í rannsóknarvinnunni. Fyrstu sérhæfðu mötin hjá Rauland munu fara fram í byrjun næsta árs. Þetta samstarf er mikilvægt fyrir VIRK og getur skipt sköpum við áframhaldandi rannsóknir á matinu að hafa slíkan samanburð.