Samstarf við lækna
Samstarf við lækna
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leggur áherslu á gott samstarf við lækna og annað fagfólk sem sinnir heilbrigðisþjónustu og endurhæfingu. Markvisst hefur verið unnið að því að þróa skilvirk samskipti og samvinnu við heimilislækna vegna sameiginlegra skjólstæðinga. Nú þegar er VIRK í skipulögðu samstarfi við þrjár heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og á nokkrum stöðum á landsbyggðinni er einnig kominn vísir að svipuðu samstarfi. Samstarfið felst í mánaðarlegum fundum þar sem m.a. er farið yfir flókin einstaklingsmál og tilvísunum komið á framfæri. Með markvissu samstarfi aukast líkur á að leið einstaklings í gegnum kerfið sé heildstætt ferli og starfsendurhæfing skili árangri.
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins og VIRK hafa gert með sér samstarfssamning þar sem skilgreind er aðkoma heimilislækna og greiðsla fyrir
læknisvottorð sem kallað er eftir, sérstaklega ef framkvæma á sérhæft mat. Einnig er þátttaka heimilislækna á skilafundum
eftir sérhæft mat skilgreind nánar.
Á næstunni kemur inn á heimasíðu VIRK flipinn „Samstarf við lækna“. Þar verður hægt að nálgast gagnlegar
upplýsingar, m.a. eyðublöðin „beiðni um þjónustu“ og „læknisvottorð vegna sérhæfðs mats“. Einnig verða
þar upplýsingar um uppsetningu og markmið mánaðarlegra funda innan heilsugæslunnar og meðhöndlun heilbrigðisgagna hjá VIRK.