Ráðgjafi í Borgarfirði og á Snæfellsnesi
Til baka
26.01.2010
Ráðgjafi í Borgarfirði og á Snæfellsnesi
Helga Karlsdóttir hefur verið ráðin í stöðu ráðgjafa í starfsendurhæfingu fyrir stéttarfélög í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.
Um er að ræða hálft starf frá 1. febrúar 2010. Helga er viðskiptafræðingur og stundar nú nám í kennslufræði á meistarastigi. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu og reynslu í félagsstöfum og hefur m.a. tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum er varða frumkvöðlastarf og hvatningu til nýrra verkefna.
Helga mun veita einstaklingum í Borgarfirði og á Snæfellsnesi þjónustu á sviði starfsendurhæfingar auk þess að starfa náið með stéttarfélögum og atvinnurekendum á svæðinu.