Ráðgjafi á Austurlandi
Til baka
05.11.2009
Ráðgjafi á Austurlandi
Nýr ráðgjafi hefur tekið til starfa á Austurlandi. Hún heitir Ragnheiður Kristiansen og mun veita einstaklingum á Austurlandi þjónustu
á sviði starfsendurhæfingar auk þess að starfa náið með stéttarfélögum starfsmanna og atvinnurekendum á svæðinu.
Ragnheiður er með menntun á sviði mannauðsstjórnunar og atvinnumarkaðsmála og með víðtæka starfsreynslu. Hún hefur búið
á Austurlandi frá árinu 2003. Til að byrja með starfaði hún sjálfstætt sem ráðgjafi fyrir ýmis fyrirtæki og
stofnanir og hélt námskeið. Síðan rak hún ráðningarskrifstofur Bechtel Inc. á Reyðarfirði í 3 ár og flutti eftir
það á Egilsstaði þar sem hún var mannauðsstjóri hjá Malarvinnslunni og síðan Kaupfélagi Héraðsbúa. Hún
hóf störf 1. nóvember.