Nýtt húsnæði fyrir matsteymi VIRK
Nýtt húsnæði fyrir matsteymi VIRK
Margir af einstaklingum í þjónustu VIRK fara á einhverjum tímapunkti í mat hjá sérfræðingum sem meta ítarlega stöðu þeirra og möguleika. Slíkt mat getur átt sér stað í upphafi ferils til þess að skoða hvort starfsendurhæfing sé raunhæf, í miðju ferli þar sem lagðar eru upp árangursríkar leiðir í starfsendurhæfingu og í lok ferils til þess að meta starfsgetu einstaklinga.
Þessi möt eru framkvæmd af aðkeyptum sérfræðingum, s.s. læknum, sjúkraþjálfurum, sálfræðingum, iðjuþjálfum og félagsráðgjöfum. Aðstaða fyrir mötin á höfuðborgarsvæðinu hefur að mestu leyti verið í Guðrúnartúni 1. Sú aðstaða hefur ekki staðið undir eftirspurn síðustu mánuði og var því ákveðið að leigja stærra húsnæði fyrir þessa þjónustu. Í lok þessa mánaðar mun opna ný aðstaða fyrir mötin að Stórhöfða 27 í Reykjavík. Með þessari nýju aðstöðu verður öll umgjörð matsins betri sem mun skila sér í aukinni og betri þjónustu fyrir einstaklinga sem leita til VIRK.