Nýr sérfræðingur hjá VIRK
Til baka
05.11.2010
Nýr sérfræðingur hjá VIRK
Nýr sérfræðingur hefur tekið til starfa hjá VIRK en það er Sveina Berglind Jónsdóttir sálfræðingur.
Sveina Berglind er með MSc gráðu í vinnusálfræði frá University of Westminster í London og framhaldsnám í klínískri sálfræði frá Háskóla Íslands (starfsnám á Reykjalundi). Hún starfaði sem sviðsstjóri á Fræðslu- og þróunarsviði hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi síðastliðin sjö ár. Meðal verkefna þar voru umsjón með fræðslu starfsmanna, gæðamálum, rannsóknum og þróunarverkefnum. Auk þess sá hún um ráðgjöf við stjórnendur og klíníska vinnu. Hún hefur einnig unnið verkefni sjálfstætt, s.s.: eineltismál á vinnustöðum, námskeið, vinnustaðagreiningar og sálfræðiráðgjöf.