Nýr ráðgjafi
Til baka
23.04.2012
Nýr ráðgjafi
Nýr ráðgjafi í starfsendurhæfingu hefur tekið til starfa hjá stéttarfélögum í samstarfi við VIRK. Það er
Hlín Guðjónsdóttir sem starfar fyrir Rafiðnaðarsambandið, VM, Matvís, Félag hársnyrtisveina og Mjólkurfræðingafélag
Íslands.
Hlín er með B.Sc gráðu í iðjuþjálfun. Hún hefur víðtæka starfsreynslu, hefur m.a. starfað sem iðjuþjálfi
á Geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúsi og hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Síðastliðin
16 ár starfaði hún sem iðjuþjálfi á Reykjalundi, endurhæfingamiðstöð SÍBS, m.a. á Taugasviði,
Verkjasviði og s.l. 7 ár sem sviðstjóri iðjuþjálfa á Hjartasviði.
Hlín er með aðsetur hjá Rafiðnaðarsambandinu á Stórhöfða.