Nýr ráðgjafi
Til baka
10.12.2010
Nýr ráðgjafi
Nýlega var nýr ráðgjafi ráðinn til starfa fyrir stéttarfélög í Vestmannaeyjum í samstarfi við VIRK, en það er
Hanna R. Björnsdóttir. Hún er með MA í fötlunarsálfræði frá Ohio State 1994 og MA í félagsráðgjöf
frá HÍ í júní 2010.
Hanna hefur fjölbreytta starfsreynslu. Hún var deildarstjóri málefna fatlaðra hjá Vestmannaeyjabæ 1998-2008. Hún hafði umsjón með
málefnum barna (deildarstjóri) hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi 1990-1997 og vann á BUGL á sumrin á meðan
hún var í háskólanámi í Bandaríkjunum. Frá árinu 1997 hefur Hanna rekið, ásamt tveimur öðrum
Systkinasmiðjuna en það er námskeið fyrir systkini barna með sérþarfir.