Nú er að taka á honum stóra sínum
Nú er að taka á honum stóra sínum
Ársrit VIRK kemur út í apríl 2011. Í ritinu er áætlað að birta fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu. VIRK býður því áhugasömum aðilum sem vilja fjalla um starfsendurhæfingu á fræðilegum nótum að senda inn greinar til birtingar. Sérstaklega er óskað eftir greinum um starfsendurhæfingu með áherslu á vinnutengingu og/eða gagnverkandi áhrif vinnu og heilsu.
Skiladagur greina verður 1. febrúar og útgáfa á ársfundi Starfsendurhæfingarsjóðs fyrri hluta aprílmánaðar 2011. Ársrit 2010 var prentað í 2000 eintökum og var því dreift til einstaklinga, fagaðila, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir eða hugmyndir að efni og efnistökum til ritstjóra á ingalo@virk.is . Lokafrestur er til 3. desember. Greidd verður hófleg þóknun fyrir birtar greinar.