Námskeið á vegum NIVA á Íslandi
Námskeið á vegum NIVA á Íslandi
Þann 1.desember síðastliðinn var haldið NIVA námskeið á Hótel Sögu um geðheilsu og endurkomu til vinnu, en NIVA er norræn
fræðslumiðstöð um vinnuvernd. Helstu sérfræðingar á Norðurlöndunum fjölluðu þar um þetta efni auk þess
sem nokkrir íslenskir sérfræðingar sem vinna í málaflokknum voru með erindi. Námskeiðið hefur verið haldið á öllum
Norðurlöndunum og var opið öllum. Besta þátttakan var á námskeiðinu á Íslandi og er það mikið gleðiefni að
fagfólk hérlendis sýni málefninu áhuga.
Sérfræðingar og ráðgjafar VIRK fjölmenntu á námskeiðið sem var mjög gagnlegt og mun án efa nýtast í störfum
þeirra. Geðsjúkdómar eru meðal algengustu ástæðna langtímaforfalla frá vinnumarkaði og því er samspil vinnuumhverfis og
geðheilsu starfsmanna mikilvægt skoðunarefni þannig að draga megi úr slíkum forföllum og auka líkur á að þeir sem hafa veikst af
geðsjúkdómi snúi aftur til vinnu.