Fara í efni

Nærri 14 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK 2015

Til baka

Nærri 14 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK 2015

13,8 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs árið 2015 samkvæmt skýrslu sem Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur hjá Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK. Niðurstöður fyrri athugana Talnakönnunar sýndu að ávinningur af starfi VIRK var 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013. Í þessu samhengi má benda á að rekstrarkostnaður VIRK árið 2015 var 2,2 milljaðar, 2 milljarðar 2014 og 1,3 milljarðar á árinu 2013.

„Niðurstaða Talnakönnunar er mjög ánægjuleg, sérstaklega í ljósi þess að að vandi einstaklinganna sem leita til VIRK er flóknari nú og fjölþættari en áður.“ segir Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK „Jafnvægi í starfseminni eftir mikla og hraða uppbyggingu mörg undanfarin ár hefur verið nýtt til faglegrar þróunar og áframhaldandi uppbyggingar á samvinnu við aðrar stofnanir velferðarkerfisins. Þá hefur mikil vinna og kraftur verið lögð í að skýra og bæta alla þjónustuferla hjá VIRK sem skilað hefur þessum góða árangri.“

Þetta er í þriðja árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013, 2014 og 2015 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Talnakönnun gaf sér varfærnar forsendur um vinnumarkaðsþátttöku einstaklinga í skýrslunni en þrátt fyrir það þá kemst Talnakönnun að þeirri niðurstöðu að starf VIRK sé mjög arðbært. Tæplega 14 milljaðar ávinningur hafi verið af starfseminni árið 2015, 11 milljarða króna ávinningur 2014 og nærri 10 milljarða ávinningur af starfseminni 2013. Ábatinn af starfseminni skilar sér bæði til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið þátt í samfélaginu.

Skýrslu Talnakönnunar um ávinninginn af starfsemi VIRK 2015 má sjá hér en niðurstöður hennar voru kynntar á ársfundi VIRK þann 5. apríl.


Fréttir

05.11.2024
18.10.2024

Hafa samband