Fræðsluefni fyrir stjórnendur og starfsmenn
Til baka
08.10.2010
Fræðsluefni fyrir stjórnendur og starfsmenn
Það er mikilvægt að bæði stjórnendur og starfsmenn séu vel upplýstir um mikilvægi góðrar fjarvistarstjórnunar og starfsendurhæfingar á vinnustöðum. Starfsendurhæfingarsjóður hefur útbúið fjölbreytt fræðsluefni fyrir stjórnendur og starfsmenn vegna þessa. Má þar meðal annars benda á eftirfarandi:
- Ábendingar um mikilvæga þætti í mótun fjarvistarstefnu
- Tíu ráð til að draga úr fjarvistum á vinnustað
- Fræðsluefnið "Vinnum saman" inniheldur m.a. leiðbeiningar til stjórnenda varðandi farsæla endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys
- Fræðsluefnið "Úr veikindum í vinnu" inniheldur m.a. leiðbeiningar til einstaklinga með skerta starfsgetu
- Fjarvistarsamtalið inniheldur leiðbeiningar til stjórnenda og starfsmanna þar sem markmiðið er að finna farsælar leiðir til að standa vörð um vinnugetu starfsmanna
- Greinin "Fjarvistarstjórnun" eftir Ingibjörgu Þórhallsdóttur sérfræðing hjá VIRK inniheldur ýmsar upplýsingar sem gagnast við mótun og framfylgni fjarvistarstefnu á vinnustað
Ofangreind fræðsluefni er m.a. að finna á síðunni "Fræðsla fyrir stjórnendur" sem er listuð upp
í gráa kassanum til vinstri á heimasíðu VIRK.