Leidd út á vinnumarkaðinn
Leidd út á vinnumarkaðinn
Þóra Sif hafði gert hlé á störfum innan líkamsræktargeirans og starfað á skrifstofu í tvö ár þegar hún
veiktist alvarlega. ,,Ég hafði byrjað að vinna á skrifstofu af því að ég var orðin svolítið þreytt í skrokknum. Ég
ætlaði að hafa íþróttirnar sem aukavinnu og hafði ákveðið að fara í snyrtiskóla. Um það leyti sem ég var að
hætta skrifstofustörfunum sumarið 2008 datt ég niður einn daginn þegar ég var heima og gat ekki hreyft hægri handlegg. Ég hafði áður
fundið fyrir verk á milli rifja og í handleggnum en ég hélt að þetta væru eftirstöðvar einhverra meiðsla vegna
íþróttaiðkunar. Eftir að ég datt niður lá ég mikið veik í þrjár vikur og þessu fylgdi hiti. Mér var
sagt að þetta væru einkenni veirusýkingar sem legðist á taugar og vöðva,“ greinir Þóra Sif frá.
Þegar hún var nýstaðin upp úr veikindunum hóf hún fyrirhugað nám í snyrtifræði. ,,Ég var samt langt frá
því að vera búin að jafna mig. Ég fann allan veturinn fyrir mikilli vanlíðan í vöðvunum og þreytu. Læknar
sögðu mér að þetta væru eftirstöðvar veirusýkingarinnar og að það gæti liðið heilt ár þar til ég
væri búin að jafna mig. Ég yrði bara að fara vel með mig. Ég harkaði af mér yfir veturinn til þess að geta fengið fullt
námslán.“
Eins og kýld með kylfu
Að sögn Þóru Sifjar versnaði henni mikið í júní 2009. ,,Ég gat ekki beygt mig til
hliðar vegna bólgu milli rifja og ég gat ekki rétt úr olnboganum. Ég var búin að vera með taugakippi og hafði fengið lyf við
þeim. Þegar þeir fóru festist olnboginn og einnig vísifingur og þumalfingur. Vöðvarnir í handleggnum rýrnuðu og þegar
ástandið var orðið svona þá hætti ég í skólanum. Niðurstöður rannsóknar gigtarlæknis sem ég fór til
leiddu í ljós að ég væri með sjálfsónæmi.“
Þóra Sif kveðst hafa verið meira og minna í rúminu þetta sumar og fram á haust. ,,Ég hef sagt að þetta hafi verið eins og
að vera kýld með hafnaboltakylfu út úr daglegu lífi. En ég ætlaði mér alltaf út á vinnumarkaðinn aftur. Annað kom
ekki til greina.“
Í mars í fyrra komst Þóra Sif að í endurhæfingu á Reykjalundi. ,,Ég hafði þurft að bíða í nokkra
mánuði eftir plássi og meðan á biðinni stóð gerði ég sjálf æfingar til þess að byggja mig upp. Ég var búin
að fá þau lyf sem ég þurfti og verkirnir í vöðvunum höfðu minnkað. Ég var auk þess farin að geta hreyft hægri
handlegginn. Reyndar átti ég erfitt með að viðurkenna fyrir sjálfri mér að ég þyrfti aðstoð annarra til endurhæfingar en
ég ákvað þó að fara á Reykjalund. Ég var þar í endurhæfingu í 9 vikur og ég gerði mér grein fyrir
því að ég þurfti virkilega á þessari aðstoð að halda. Mér leið rosalega vel eftir dvölina þar.“
Komin langt áleiðis
Það var á Reykjalundi sem Þóra Sif fékk upplýsingar um starfsemi
Starfsendurhæfingarsjóðs. ,,Félagsráðgjafi á Reykjalundi, sem ég hafði átt mjög góð samskipti við, hringdi í
Karenu Björnsdóttur, ráðgjafa á vegum Starfsendurhæfingarsjóðs, og hún hringdi svo í mig. Ég er ekki viss um að ég
hefði hringt í hana sjálf. Karen bauð mér að koma og spjalla við sig þegar ég var að útskrifast af Reykjalundi. Hún hefur reynst
mér afar vel. Hún mælti með því að ég færi í sjúkraþjálfun og á námskeið í
sjálfstyrkingu fyrir þá sem dottið hafa út af vinnumarkaðnum. Þetta styrkti mig mikið og var mér að kostnaðarlausu.“
Þóra Sif segir Karen jafnframt hafa aðstoðað sig við að fá endurhæfingarlífeyri framlengdan og hvatt sig til þess að fara að leita
sér að vinnu. ,,Við ræddum um hvað mig langaði til að gera en ekki um hvað ég væri hrædd við að gera. Karen hjálpaði
mér einnig við að gera ferilskrá. Þótt ég hafi ekki dottið niður í þunglyndi vegna veikindanna fann ég fyrir
kvíða og óvissu um hvort einhver vildi ráða íþróttafræðing með hálfbilaðan skrokk til starfa. Það var hins vegar
tekið afar vel á móti mér þegar ég sótti um starf á líkamsræktarstöðinni Heilsuborg. Þar eru sérstök
námskeið sem kallast heilsulausnir fyrir þá sem þurfa á sérstakri þjálfun og aðstoð að halda og mér var sagt að
þar sem ég hefði verið hinum megin við borðið myndi reynsla mín nýtast vel á þessari líkamsræktarstöð.
Ég sé um æfingar fyrir einn flokk á stöðinni auk þess sem ég held fyrirlestra og ég er búin að vera þarna í hlutastarfi
frá því í lok ágúst 2010.“
Í október síðastliðnum hóf Þóra Sif svo störf á leikskólanum Hagaborg. ,,Ég hafði sagt Karen ráðgjafa
frá því að mig langaði til þess að starfa með börnum og hún hvatti mig þess vegna til þess að sækja um vinnu á
leikskóla. Ég er í hálfu starfi á Hagaborg og sé um hreyfingu barna þar. Ég hefði aldrei trúað því fyrir ári
síðan að ég yrði komin svona langt áleiðis nú,“ segir Þóra Sif.