Kynning á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Til baka
30.09.2009
Kynning á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Í síðustu viku voru Ágústa Guðmarsdóttir, ráðgjafi í starfsendurhæfingu fyrir stéttarfélögin á Suðurlandi, og Sigurður Þór Sigursteinsson frá VIRK með kynningu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Farið var yfir hlutverk Ágústu sem ráðgjafa stéttarfélaganna og hvernig hægt er að vísa á hana og einnig var farið yfir hlutverk VIRK. Áhersla var lögð á að vera í samstarfi við heilsugæsluna og að geta unnið saman að því að minnka líkurnar á því að fólk detti út af vinnumarkaðnum vegna heilsubrests. Kynningin gekk vel og góðar umræður mynduðust.
Á næstu mánuðum verða kynningar á öllum heilsugæslustöðvum á landinu.