Hvernig líður þér í vinnunni?
Hvernig líður þér í vinnunni?
VIRK starfsendurhæfingarsjóður og Geðhjálp stóðu fyrir morgunfundi um geðheilbrigði á vinnustöðum á Grand Hótel þriðjudaginn 10. október kl. 8.30-10.30 í tilefni af Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum.
Sirrý Arnardóttir sá um fundarstjórn á morgunfundinum sem bar yfirskriftina Hvernig líður þér í vinnunni? Ábyrgð stjórnenda og starfsfólks á andlegri líðan á vinnustað.
Mjög mikil aðsókn var á morgunfundinn. Troðfullur salur gerði góðan róm að innleggjum á fundinum sem hvert og eitt þótti áhugavert á sinn hátt.
Sjá myndasafn af fundinum hér og glærur fyrirlesara hér að neðan.
Dagskrá:
Ávarp
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra
Ertu komin í þrot?
Linda Bára Lýðsdóttir, sviðstjóri hjá VIRK
Sjá glærur með erindi Lindu Báru hér.
Húmor og gleði í vinnunni eru dauðans alvara
Edda Björgvinsdóttir, leikkona og fyrirlesari
Sjá glærur með erindi Eddu hér og gleðiæfingar hér og hér.
Reynslusaga
Sveinn Þorsteinsson
Vert þú fyrirmynd
Bára Hildur Jóhannsdóttir, deildarstjóri á mannauðssviði Landsspítala
Sjá glærur með erindi Hildar Báru hér.
Reynslusaga
Margrét Marteinsdóttir
Samantekt fundarstjóra