Gleði í vinnunni eykur vellíðan
Til baka
30.01.2012
Gleði í vinnunni eykur vellíðan
Í verkefninu Virkur vinnustaður er lögð áhersla á jákvæða og heilsusamlega nálgun
varðandi mótun Stefnu um velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu. Í verkefnavinnu þegar fólk er spurt hvað vellíðan á vinnustað
þýði fyrir það og hvað geri vinnustaðinn skemmtilegan eru fyrstu svörin oft: „Vinnufélagarnir“, „gleði“,
„hlátur“, „góður starfsandi“ og „jákvæðni“ áður en það nefnir viðfangsefnin og annað sem
lýtur beint að starfinu.
Við þekkjum öll vinnustaði þar sem glaðlegt og léttlynt fólk hefur góð áhrif á móralinn – og svo öfugt, þar sem neikvæðnin og baktalið fær yfirhöndina. Vinnustaður þar sem jákvæðni, léttleiki og gleði er í fyrirrúmi hlýtur alltaf að vera fyrsta val.
Hér koma örfá ráð sem hver og einn starfsmaður getur hugsað út frá til þess að styrkja liðsheildina.
Hvernig get ég stuðlað að því að:
• Koma á skemmtilegum hefðum.
• Leggja til hugmyndir um aukna fagþekkingu.
• Vekja athygli innan vinnustaðarins á góðum árangri.
• Skapa góð tengsl við vinnufélagana.
• Skapa góðan starfsanda.
• Auka viðurkenningu og hrós.
• Koma starfsfélögunum á óvart.
• Aðstoða nánustu samstarfsfélaga.
• Gera starfsmannafundi notalegri.
• Auka þátttöku starfsmannanna.