Framúrskarandi fyrirtæki
Til baka
31.10.2019
Framúrskarandi fyrirtæki
Creditinfo staðfesti nýverið að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2019, fjórða árið í röð.
Eingöngu komu til greina þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum 2019.
2% fyrirtækja í landinu uppfylla kröfunarnar. VIRK er nr. 103 af 884 fyrirtækjum sem eru framúrskarandi.
Til að teljast framúrskarandi fyrirtæki þarf að uppfylla þessi skilyrði:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
- Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2016-2018
- Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2016-2018
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi var skilað til RSK fyrir rekstrarárin 2016-2018
- Ársreikningi fyrir rekstrarárið 2018 var skilað á réttum tíma skv. lögum
- Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2016-2018
- Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018
- Eignir voru a.m.k. 100 milljónir krónur rekstrarárin 2017 og 2018 og a.m.k. 90 milljónir króna rekstrarárið 2016