Fjölmenn og vel heppnuð ráðstefna
Til baka
15.04.2011
Fjölmenn og vel heppnuð ráðstefna
Ráðstefna VIRK „Vinnum saman“ sem haldin var á Grand hótel miðvikudaginn 13. apríl sl. var fjölsótt og vel heppnuð.
Ráðstefnan var sérstaklega ætluð fagfólki í starfsendurhæfingu. Tæplega 200 manns skráðu sig á
ráðstefnuna sem sýnir mikinn áhuga ólíkra faghópa á starfsendurhæfingu hér á landi. Erindin voru fjölbreytt
þar sem kynntar voru bæði nýjungar og áhugaverðar rannsóknir á þessu sviði. Glærur allra fyrirlesara er hægt að
skoða hér á heimasíðu VIRK á síðunni Kynningarefni. Einnig er hægt að skoða myndir
frá ráðstefnunni hér. VIRK vill þakka öllum þátttakendum fyrir
komuna og skemmtilegan dag.