Endurkoma á vinnumarkað
Til baka
05.10.2011
Endurkoma á vinnumarkað
Þjónusta VIRK miðar að því að styðja einstaklinga með heilsubrest aftur út á vinnumarkað.
Nú hefur þjónusta hjá ráðgjöfum VIRK sem staðsettir eru hjá stéttarfélögum um allt land verið í boði í
tvö ár. Á þessum tíma hefur fjöldi fólks farið í gegnum kerfið og sífellt er verið að leita leiða til að
aðstoða einstaklinga aftur í vinnu. Hluti þessa hóps er í vinnusambandi og kemst aftur í sína fyrri vinnu með aðstoð og samvinnu
ráðgjafa og vinnuveitanda.