Dagbók VIRK 2018 komin út
Til baka
27.12.2017
Dagbók VIRK 2018 komin út
Dagbók VIRK 2018 er komin út og á leið til ráðgjafa okkar um allt land þar sem einstaklingar í þjónustu geta nálgast hana.
Dagbókin, sem nú er gefinn út i áttunda sinn, er hönnuð af Kristínu Maríu Ingimarsdóttur, ritstýrt af Eysteini Eyjólfssyni og prentuð í prentsmiðju Guðjóns Ó.
Dagbókin hefur svipað yfirbragð og fyrri dagbækur VIRK og er sett upp til að auðvelda þeim sem hana nota að skrásetja líðan sína og áfangana sem þeir ná í starfsendurhæfingu sinni.
Einstaklingar í þjónustu VIRK eru hvattir til þess að nota dagbókina til auka starfsgetu sína og lífsgæði og nýta sér hvernig hún er markvisst byggð upp til að auðvelda markmiðssetningu og til hvatningar einstaklingnum.