Trúnaðarmannafræðsla
Til baka
25.01.2013
Trúnaðarmannafræðsla
Frá stofnun VIRK hefur Félagsmálaskóli alþýðu kallað til sérfræðinga þaðan til að sjá um fræðslu
á trúnaðarmannanámskeiðum skólans. Markmið fræðslunnar er að trúnaðarmenn á vinnustöðum öðlist þekkingu
á starfsemi VIRK, hlutverki sjóðsins og aðferðum. Þannig eru þeir betur í stakk búnir til að upplýsa samstarfsfólk sitt og benda
þeim á þá aðstoð sem VIRK býður.
Efni sem farið er yfir í trúnaðarmannafræðslunni er m.a:
Hugmyndafræði VIRK og hlutverk
Hverjir hafa þörf fyrir starfsendurhæfingu
Að trúnaðarmenn bendi einstaklingum á sínum vinnustað á aðstoð VIRK vegna tíðra veikindafjarvista og langvarandi
veikindafjarvistar
Vangaveltur um hlutverk trúnaðarmanna í starfsendurhæfingu
Áherslan á endurkomu til vinnu
Starf ráðgjafa