Fara í efni

Þverfagleg matsteymi

Til baka
Starfsendurhæfingarferli VIRK
Starfsendurhæfingarferli VIRK

Þverfagleg matsteymi

Þverfagleg matsteymi sem starfa á vegum VIRK gegna mikilvægu hlutverki í starfsendurhæfingarferlinu. Um 45 sérfræðingar koma að matsteymunum, flestir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru til staðar sérfræðingar á Akureyri, Austurlandi og Reykjanesi. Um er að ræða lækna, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa. Þessir sérfræðingar starfa fyrir VIRK sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar samkvæmt sérstökum samningum og vinnuframlag þeirra er mismunandi mikið. Flestir þeirra sinna einnig öðrum störfum, annað hvort sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar eða hjá öðrum aðilum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá hvernig starfsemi þessara þverfaglegu matsteyma hjá VIRK tengist starfsendurhæfingarferlinu en starfsemi þeirra hefur eflst mikið á undanförnum tveimur árum samhliða aukinni áherslu á þverfaglega þjónustu og markvissara ferli í starfsendurhæfingu.

Hlutverk sérfræðinga er mismunandi eftir sérhæfingu og teymum en matsteymi VIRK koma að neðangreindum verkefnum:

Raunhæfimat starfsendurhæfingar. Læknir og eftir aðstæðum sjúkraþjálfari og sálfræðingur koma að raunhæfimati starfsendurhæfingar. Þar er metið hvort starfsendurhæfing sé raunhæf og muni skila árangri fyrir einstaklinginn út frá stöðu hans.

Þverfagleg rýni. Öll mál einstaklinga hjá VIRK eru rýnd af þverfaglegum teymum sem samanstanda af læknum, sjúkraþjálfurum og sálfræðingum auk ráðgjafans í hverju tilfelli fyrir sig. Þessi teymi aðstoða ráðgjafa við að byggja upp árangursríka endurhæfingaráætlun í takt við þarfir hvers og eins einstaklings. Slík þverfagleg aðkoma að málum er studd af rannsóknum á sviði starfsendurhæfingar. Frá síðasta hausti hefur það verið markmið VIRK að rýna öll mál sem eru í starfsendurhæfingarferli á þriggja mánaða fresti. Tilgangur þess er að tryggja markvissa upplýsingaöflun, markmiðasetningu og úrræðakaup strax í upphafi ferils einstaklings hjá VIRK og síðan á þriggja mánaða fresti á meðan á þjónustunni stendur.

Sérhæft mat. Þegar mál einstaklinga eru flókin, töluverð endurhæfing hefur átt sér stað, langur tími er liðinn frá því að einstaklingur var á vinnumarkaði og/eða lítill framgangur er í starfsendurhæfingu er vísað í sérhæft mat. Sérhæft mat er þverfaglegt endurhæfingarmat og markmið þess er að fá mat sérfræðinga á starfsendurhæfingarmöguleikum einstaklingsins svo unnt sé á markvissan máta að vinna að árangursríkri starfsendurhæfingaráætlun. Í sérhæfðu mati hittir einstaklingur viðkomandi sérfræðinga sem geta þá verið læknir, sálfræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi allt eftir aðstæðum og þörfum viðkomandi einstaklings.

Starfsgetumat. Fer fram ef áætlun úr sérhæfðu mati er lokið og ekki hefur náðst sá árangur sem vænst var. Forsenda fyrir formlegu starfsgetumati er einnig að einstaklingur treysti sér ekki í fullt starf/fyrra starfshlutfall þrátt fyrir að búið sé að reyna markvissa starfsendurhæfingu. Í starfsgetumati er eftirfarandi spurningum svarað: Er starfsendurhæfing fullreynd? Hver er starfsgetan?


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband