Fara í efni

Þróunarverkefni VIRK og Reykjalundar gengur vel

Til baka

Þróunarverkefni VIRK og Reykjalundar gengur vel

Árið 2011 veitti VIRK Reykjalundi styrk til uppbyggingar- og þróunarverkefnis í starfsendurhæfingu með það að markmiði að þróa áfram niðurstöður úr matsferli VIRK markvisst inn í vinnuprófun.

Vinnustöðvar voru settar upp í samhengi við mikilvæga þætti ICF kerfisins (International Classification of Function - alþjóðlegu flokkunarkerfi færni, fötlunar og heilsu) sem skilgreindir eru nánar í matsferli VIRK til að greina starfsgetu og gera þannig atvinnuleit og endurkomu til vinnu markvissari.

Á Reykjalundi er löng hefð fyrir starfsendurhæfingu með áherslu á atvinnu þ.e.a.s. vinnuheimilið Reykjalundur. Fagfólk sem vinnur við starfsendurhæfingu er til staðar og þar hefur verið rekin eftirlíking af vinnustað sem sérhæfir sig í vinnu einstaklinga með skerta vinnugetu. Vegna breytinga á Reykjalundi losnaði húsnæði sem jók möguleika starfsendurhæfingar Reykjalundar til að þróast og vaxa enn frekar. Auk þess var margt til staðar á Reykjalundi sem hentar vel þeim einstaklingum sem þurfa á starfsendurhæfingu að halda þ.e.a.s. ýmis fræðsla sem er fyrir öll svið Reykjalundar eins og t.d. Bak- og verkjaskóli, Streitustjórnunarnámskeið o.fl.

Þríþætt verkefni

Verkefnið byggir á þremur meginstoðum. Matstækin sem notuð eru á Reykjalundi sem og önnur matstæki innan starfsendurhæfingar voru skoðuð og greint hver þeirra gætu nýst inn í vinnumatið eða þætti þess og þau tengd við notkun ICF kerfisins. Þá fólst verkefnið í þróun starfsstöðva og þróun prófunar- og þjálfunarúrræða. Skilgreind voru ákveðin störf/verkefni innan þessara stöðva sem markvisst reyna á skilgreinda færniþætti. Þannig var lagður grunnur að sex prófunarstöðvum og verkefni og verkferlar á hverri prófunarstöð skilgreindir. Eftir að búið var að meta, prófa og aðlaga þessa þætti er komið að þriðja og síðasta þættinum sem er tengingin við atvinnulífið á ný. Hann felst m.a. í að gera ferilskrá með einstaklingunum, vinnustaðaathugun, atvinnuleit, starfsumsóknum, tengingu við VIRK, Vinnumálastofnum, almenna vinnustaði og önnur úrræði.

Mikilvægt úrræði

Verkefnið hefur gengið vel, miðað jafnt og þétt áfram utan árshlés vegna endurbóta á húsnæði á Reykjalundi og er nú á lokastigi. Búið er að velja matstæki, þróa starfsstöðvar, skilgreina störf og verkefni, auk þess að skilgreina tímaramma og Uppbyggingar- og þróunarverkefni VIRK og Reykjalundar ferlið í heild og lokaþátturinn, prófun matsferlis, stendur yfir. Síðasta hálfa árið hafa tíu einstaklingar í þjónustu VIRK verið í forprófum á vinnufærnimati á Reykjalundi. Hverju mati lýkur með skilafundi, þar sem farið er yfir niðurstöður matsins með einstaklingnum og ráðgjafa hans hjá VIRK.

Mjög mikilvægt er fyrir VIRK að geta boðið upp á úrræði sem þetta þar sem það nýtist helst einstaklingum sem ekki eru lengur í vinnusambandi og hafa verið töluvert lengi utan vinnumarkaðar.


Sjá viðtal hér við Magnús Ólason framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi og Ingu Jónsdóttur iðjuþjálfa um þróunarverkefnið.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband