Fara í efni

Þrír nýir ráðgjafar

Til baka

Þrír nýir ráðgjafar

Þrír nýir ráðgjafar hafa tekið til starfa hjá stéttarfélögum í samstarfi við VIRK. Elín Reynisdóttir hóf störf hjá stéttarfélögunum á Akranesi, Guðleif Birna Leifsdóttir hjá BHM, KÍ og SSF og Hanna Dóra Björnsdóttir hjá stéttarfélögum á Norðurlandi vestra.

Elín útskrifaðist með BA próf í félagsráðgjöf með starfsréttindum frá Háskóla Íslands árið 2006 og hefur starfað sem félagsráðgjafi í Snæfellsbæ og Reykjavík síðan þá.

Guðleif Birna útskrifaðist með starfsréttindi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2000, en hún hafði áður lokið BA námi í uppeldis- og menntunarfræði. Guðleif hefur starfað sem félagsráðgjafi í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness síðan hún lauk námi.

Hanna Dóra lauk B.Ed. próf í grunnskólakennarafræði  árið 2001 og mastersnámi í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2008. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu, en starfaði nú síðast hjá Fjölskylduþjónustu Skagfirðinga við verkefnisstjórnun, ásamt því að starfa við uppeldis- og sálfræðiráðgjöf hjá Fræðsluþjónustu Skagfirðinga.

Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband