Fara í efni

Rannsóknir varðandi endurkomu til vinnu (ETV)

Til baka

Rannsóknir varðandi endurkomu til vinnu (ETV)

Heilbrigðisstarfsfólk gegnir mikilvægu hlutverki í „endurkomu til vinnu“ (ETV) fyrir fólk sem á við heilsuvanda að stríða og viðhorf þess og leiðbeiningar hafa afgerandi áhrif á bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Mikil umræða hefur verið erlendis og hér heima vegna langtíma veikindavottorða lækna og þær takmarkanir sem þau leggja á fólk vegna endurkomu til vinnu.
 
Rannsakendur í Kanada vildu skilja ástandið betur og gerðu samanburðarrannsókn þar sem allir meðferðaraðilar mátu sömu þrjá einstaklingana með tilliti til endurkomu til vinnu.

Heilbrigðisstarfsfólk sem vann á sömu endurhæfingarstöð var beðið að meta þrjá einstaklinga út frá ýtarlegri heilsufars- og félagssögu þess. Þrjátíu og sex heilbrigðisstarfsmenn tóku þátt í rannsókninni. Fimm læknar, þrettán sjúkraþjálfarar, tíu iðjuþjálfar og átta líkamsþjálfarar.

Það var áhugavert að sjá þegar um var að ræða hreina læknisfræðilega ástæðu svo sem beinbrot að flestir voru sammála um hvernig ætti að höndla vottorð um endurkomu til vinnu. Hinsvegar ef vandinn var flóknari til dæmis við að meta áhrif  bakverks á vinnugetu þá var samræmi milli mats þessara þrjátíu og sex heilbrigðisstarfsmanna miklu minna og einungis 55% voru sammála um hvernig haga bæri endurkomu til vinnu.


Algengast var að þeir ráðleggðu vinnuaðlögun og breytingu á starfsskyldum til að auðvelda endurkomu til vinnu. Um helmingur heilbrigðisstarfsmannanna byggði afstöðu sína nær eingöngu á læknisfræðilegu mati á ástandi einstaklingsins, en aðrir tóku inn í viðhorf til vinnunnar og upplýsingar um hana, kvíða og hugarástand einstaklingsins ásamt öðrum þáttum.

Trú einstaklingsins á sjálfan sig og  ástand sitt og hugmyndir hans um að vinnan muni gera það verra eru allt mikilvægir þættir sem þarf að taka tillit til. Þessir þættir ættu hinsvegar ekki að hindra einstaklinginn í að fara aftur í vinnu, þá ætti frekar að vinna með, með samræðum, leiðbeiningum  og áhugahvetjandi samtölum til að auðvelda endurkomu til vinnu.

Ef einstaklingur getur farið aftur í vinnu, án þess að skaða sig, út frá læknisfræðilegum ástæðum, ætti hann að gera það. Það er samstarfsverkefni atvinnurekandans, starfsmannsins og meðhöndlandi heilbrigðisstarfsmanns að tryggja að það gerist þannig að það sé ávinningur fyrir alla. 

Ofangreint er samantekt úr rannsókn sem birtist í  Journal of Occupational Rehabilitation. 20(3):367-77, 2010 Sep. Undir heitinu „Do clinicians working within the same context make consistent return-to-work recommendations?“ Höfundar vor: Ikezawa Y. Battie MC. Beach J. Gross D. 


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband