Fara í efni

Ráðstefna 9.-10. nóvember

Til baka

Ráðstefna 9.-10. nóvember

Þann 9.-10. nóvember nk. verður ráðstefnan "Virkjum fjölbreyttari mannauð" haldin á Hótel Nordica.
Ráðstefnan er haldin undir yfirskriftinni "Atvinna fyrir alla" og hefst mánudagskvöldið 9. nóvember og lýkur síðdegis þann. 10. nóvember. Á ráðstefnunni verður fjallað um áhrifaríkustu aðferðirnar á Norðurlöndum við að virkja fólk með skerta starfsgetu og þær aðferðir sem hafa reynst árangursríkar við að gera fólki kleift að gerast á ný virkir þátttakendur í atvinnulífinu.

Sjónum verður einkum beint að ungu fólki, 30 ára og yngra. Ráðstefnan verður haldin á ensku.
Ráðstefnurnar eru liður í formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009. Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Vinnumálastofnun og Starfsendurhæfingarsjóður standa að ráðstefnunni  í samstarfi við aðrar norrænar stofanir um atvinnu- og endurhæfingarmál.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Skráning á heimasíðunni: http://yourhost.is/arbejdetilalle2009

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni: http://norden2009.is/arbejde-til-alle


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband