Fara í efni

Nýir ráðgjafar á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum

Til baka

Nýir ráðgjafar á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum

Tveir nýir ráðgjafar í starfsendurhæfingu hafa verið ráðnir til starfa hjá stéttarfélögum í samstarfi við VIRK.

Erla Jónsdóttir er nýr ráðgjafi sem ráðinn hefur verið til starfa hjá stéttarfélögunum á Austfjörðum. Erla útskrifaðist frá Þroskaþjálfaskóla Íslands árið 1986 og vann um árabil sem þroskaþjálfi á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi, auk þess að reka eigið fyrirtæki um 5 ára skeið. Á árunum 2007 - 2012 starfaði hún sem framkvæmdastjóri og ráðgjafi starfsendurhæfingar Austurlands. Erla er með starfsstöð hjá stéttarfélögunum á Austurlandi, á Reyðarfirði og á Egilsstöðum.

Georg Ögmundsson hefur verið ráðinn sem ráðgjafi hjá stéttarfélögunum í Vestmannaeyjum. Georg útskrifaðist sem sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands árið 2002 og lauk diplómanámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Hann starfaði sjálfstætt sem sjúkraþjálfari um fimm ára skeið en hefur frá árinu 2007 unnið hjá Fjarðaráli við umhverfis-, heilsu- og öryggismál. Georg er með aðsetur hjá VR í Vestmannaeyjum.

Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband