Fara í efni

Nýir ráðgjafar

Til baka

Nýir ráðgjafar

Tveir nýir ráðgjafar hófu störf hjá okkur í sumar. Það eru þær Heiða Kristín Harðardóttir sem verður hjá VR og Guðrún Guðmundsdóttir hjá sameinaða lífeyrissjóðnum.


Heiða Kristín útskrifaðist sem Uppeldis- og menntunarfræðingur með tómstundarfræði sem aukafag í febrúar 2009 . Hún vann í hálft ár með einhverfum dreng eftir að náminu lauk og þar til hún fór í Náms- og starfsráðgjöf haustið 2009. Þaðan útskrifaðist hún með diplóma og starfsréttindi úr náms- og starfsráðgjöf vorið 2010 og hóf störf sem námsráðagjafi við Njarðvíkurskóla til 2011 en var svo hjá Fjölbrautarskóla Suðurnesja til 2013.

Guðrún útskrifaðist úr Menntaskólanum í Kópavogi 1981.  Hún lærði sjúkraþjálfun við HÍ og útskrifaðist þaðan með BSc próf 1986.  Eftir það vann hún á Borgarspítalanum í 7 ár og vann samhliða því við endurhæfingu hjartasjúklinga á HL stöðinni.  Vann eitt sumar við endurhæfingu í Borås í Svíþjóð og um tíma  hjá Styrk sjúkraþjálfun við göngudeildarþjónustu.  Guðrún hefur undanfarin 19 ár unnið við endurhæfingu og forvarnir á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og þar af 15 ár sem yfirsjúkraþjálfari.  Hún hefur setið í stjórn Félags íslenskra sjúkraþjálfara og verið virk í störfum fyrir fagfélagið.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband