Fara í efni

Fræðsludagar ráðgjafa VIRK

Til baka
Fræðsludagar ráðgjafa
Fræðsludagar ráðgjafa

Fræðsludagar ráðgjafa VIRK

Fyrstu fræðsludagar  haustsins hjá  ráðgjöfum VIRK í starfsendurhæfingu voru haldnir 11-12. september síðastliðinn í Reykjavík. 

Á dagskrá var m.a. fræðsla um andleg veikindi sem mikilvægt er fyrir ráðgjafa í starfsendurhæfingu að hafa góða innsýn í í sínu starfi. Til leiks voru fengnir mjög færir sérfræðingar á þessu sviði og má þar nefna Valgerði Baldursdóttir yfirlækni geðsviðs Reykjalundar og Héðinn Unnsteinsson sérfræðing í stefnumótun hjá Forsætisráðuneytinu.  

Fræðslan er hluti af sérhæfðu námsefni fyrir ráðgjafa í starfsendurhæfingu.  Um er að ræða nám í 25 lotum sem VIRK gerði samstarfssamning um við NIDMAR (National Institute of Disability Management and Research ).  Einnig var á dagskrá verklag og þróun VIRK í nútíð og framtíð.

Fræðsludagar ráðgjafa VIRK eru einu sinni í mánuði í 1-2 daga.  Þeir eru bæði nýttir til að samhæfa vinnuferla og verklag og miðla verðmætri reynslu og þekkingu á sviði starfsendurhæfingar. 

Notast er bæði við innlent og erlent fræðsluefni m.a. frá National Institute of Disability Management and Research (NIDMAR).  Einnig er leitast við að fá fagfólk hér á landi til að koma og miðla sinni þekkingu og reynslu til ráðgjafa á mikilvægum sviðum starfsendurhæfingar.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband