Fara í efni

Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2016

Til baka

Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2016

Ársrit VIRK verður venju samkvæmt gefið út í byrjun apríl á næsta ári. Skýrsla framkvæmdastjóra og annar fróðleikur og frásagnir af starfsemi VIRK verða meðal efnis í ársritinu en auk þess að stefnt er að því að hafa fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ritinu.

Þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum og/eða umfjöllunarefnum eru beðnir um að hafa samband við ritstjóra, senda t.d. tölvupóst á eysteinn@virk.is.

Ársritið kemur út eins og fyrr segir í byrjun apríl 2016 á ársfundi VIRK og því verður dreift til einstaklinga, fagfólks, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land, auk þess sem ársritið verður aðgengilegt á heimasíðu VIRK.

Sjá má fyrri ársrit VIRK hér.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband