Fara í efni

Áhugaverðri ráðstefnu lokið

Til baka

Áhugaverðri ráðstefnu lokið

Ráðstefnan "Virkjum fjölbreyttari mannauð", var haldin var 9. og 10. nóvember s.l.  Ráðstefnuna sóttu meira en 200 þátttakendur  og voru þar flutt mörg áhugaverð erindi.

Undir yfirskriftinni "Atvinna fyrir alla" voru kynnt verkefni frá Norðulöndum og Íslandi sem flest fjölluðu um hvernig er hægt að aðstoða fólk við að fara aftur í vinnu eftir langtíma atvinnuleysi eða fjarveru frá vinnumarkaði vegna skertrar starfsgetu.

Kynntar voru aðferðir sem notaðar eru í Noregi og Danmörku til að virkja ungt fólk til að komast aftur út á vinnumarkaðinn og sérfræðingur frá Europien Social Network fjallaði um sama efni. Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs  kynnti starfsemi VIRK og Stefán Ólafsson prófessor hjá HÍ kynnti athyglisverðar tölur m.a. um hlutfall öryrkja sem hafa mikinn áhuga á því að taka þátt í atvinnulífinu.
Hægt er að nálgst kynningu Vigdísar hér.

Í lok ráðstefnu voru síðan fjórar mismunandi "Work shop" sem fólk gat valið sig á. Þessar vinnustofur fjölluðu um langvarandi atvinnuleysi og hvernig hægt er að fyrirbygga það, samvinnu milli fagaðila, unga atvinnuleytendur, og síðasti hópurinn fjallaði um þáttöku atvinnulífsins og hvernig hægt væri að auka virknina þar. Í síðastnefnda vinnuhópnum var skipt upp í hópa sem fjölluðu nánar um þennan þátt og þau atriði sem komu fram þar verða kynnt hér á síðunni síðar.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband