Fara í efni

Breytt viðhorf

Til baka

Breytt viðhorf

Vinnan hefur áhrif á heilbrigði einstaklinga og að sama skapi hefur heilbrigði einstaklinga margvísleg áhrif á vinnuna.

 

Algengir þættir sem hafa áhrif á þetta samspil eru endurkoma til vinnu eftir veikindi eða slys, viðbrögð við veikindum eða vinnuslysum, heilsusamlegt umhverfi og hvatning til heilsueflingar. Allir þessir þættir geta haft áhrif á framleiðni fyrirtækis.

 

Við leggjum áherslu á snemmbær inngrip og endurkomu til vinnu.  Flestir koma aftur til vinnu fljótlega eftir veikindafjarvist, en marktækur minnihluti er fjarverandi til langs tíma og sumir koma aldrei aftur til vinnu.
Þegar þörf er á fjarvist frá vinnu vegna slyss eða veikinda, þá verður fjarvistin sjálf að áhyggjuefni. Margar vel unnar rannsóknir benda eindregið til þess að vinnan sjálf sé heilsueflandi fyrir flesta og að hún sé mikilvægur þáttur í endurhæfingu einstaklingsins.  Að auki benda rannsóknir eindregið til þess að því lengur sem einstaklingur er ekki í vinnu, því ólíklegri sé hann til að fara aftur til vinnu. Eftir nokkra mánuði minnka líkurnar á endurkomu til vinnu svo mikið að hugsanlegt er að viðkomandi fari aldrei í vinnu aftur. Þegar þetta gerist eru persónulegar og fjárhagslegar afleiðingar fyrir einstaklinginn alvarlegar. Vinnuleysið er hættulegt heilsu einstaklingsins og dýrt fyrir samfélagið.

Í mörgum tilfellum má forðast neikvæðar afleiðingar veikindafjarvista, þær eru ekki náttúrulögmál.
Möguleikarnir á því að geta snúið aftur til vinnu tengjast engan veginn eingöngu alvarleika slyss eða sjúkdóms. Staðreyndin er sú að aðrir þættir eru miklu mikilvægari. Þetta eru þættir eins og læknismeðferð og önnur heilbrigðisþjónusta, snemmbært inngrip, viðbrögð atvinnurekandans við veikindunum, ákvarðanir sem teknar eru á vinnustaðnum, viðhorf einstaklingsins og fjölskyldu hans, viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, samstarfsmanna, yfirmanna og atvinnurekenda. Þetta  eru allt  mikilvægir áhrifaþættir  á bataferlið og endurkomu til starfa.  
Rannsóknir sýna að læknismeðferð ein og sér er ekki nægileg til að auka líkur á endurkomu til vinnu, það er þverfaglegt verkefni.  Í starfsendurhæfingu er því lögð áhersla á þátttöku einstaklingsins, atvinnurekenda, heilsugæslu, öryggis- og trúnaðarmanna og fjölda sérfræðinga  sem hver fyrir sig leggur til sína sérþekkingu til að einstaklingurinn nái árangri og komist aftur í vinnu.


Fréttir

18.10.2024
05.11.2024

Hafa samband