Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2021
Til baka
16.12.2020
Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2021
Ársrit VIRK verður venju samkvæmt gefið út á ársfundi VIRK sem haldinn verður í aprílmánuði 2021. Þema ársritsins 2021 verður fjölbreytileiki og umburðarlyndi.
Skýrsla framkvæmdastjóra og annar fróðleikur, frásagnir af starfsemi VIRK og viðtöl verða meðal efnis í ársritinu en auk þess verður sem fyrr boðið upp á fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ársritinu.
Þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum og/eða umfjöllunarefnum eru beðnir um að hafa samband við ritstjórn, senda tölvupóst á eysteinn@virk.is.
Sjá má fyrri ársrit VIRK hér.