Fara í efni

Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2015

Til baka

Auglýst eftir efni í ársrit VIRK 2015

Ársfundur VIRK verður haldinn 14. apríl 2015 á Grand hótel í Reykjavík. Af því tilefni verður venju samkvæmt gefið út ársrit sem inniheldur skýrslu framkvæmdastjóra og annan fróðleik um starfsemi VIRK. Auk þess er stefnt að því að hafa fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ritinu og eru þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum eða umfjöllunarefnum beðnir um að hafa samband við ritstjóra á eysteinn@virk.is.

Útgáfa ársrits verður sem fyrr segir á ársfundi VIRK þann 14. apríl  2015 og verður því dreift til einstaklinga, fagfólks, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land, auk þess sem ritið verður aðgengilegt á heimasíðu VIRK þar sjá má fyrri ársrit.


Fréttir

06.06.2024
30.04.2024

Hafa samband