Ársrit um starfsendurhæfingu
Til baka
03.05.2010
Ársrit um starfsendurhæfingu
Starfsendurhæfingarsjóður hefur gefið út ársrit um starfsendurhæfingu. Þetta er fyrsta ársrit sjóðsins. Ritinu var dreift
á morgunverðarfundi og ársfundi sjóðsins í síðustu viku. Með útgáfu ársrits vill sjóðurinn miðla
upplýsingum um starfsemina auk þess að koma á framfæri bæði innlendri og erlendri þekkingu og reynslu á sviði starfsendurhæfingar.
Þessum upplýsingum er komið á framfæri í formi umfjöllunar, viðtala og greinarskrifa. Hægt er að nálgast ritið hér. Einnig er hægt að fá ársritið sent í pósti með því
að senda inn beiðni á netfangið virk@virk.is.
Ársrit um starfsendurhæfingu